Engin kortavandamál í Kína

Ólympíuleikvangurinn í Peking. Nú tendur yfir ólympíumót í brids í …
Ólympíuleikvangurinn í Peking. Nú tendur yfir ólympíumót í brids í borginni. Reuters

Íslensk kreditkort virka án vandamála í Kína, að sögn Björns Eysteinssonar, fyrirliða íslenska bridslandsliðsins, sem keppir á ólympíumótinu í Peking.

Björn sagði við mbl.is, að hann hefði síðast notað kreditkort í hraðbanka í borginni í morgun og því hefðu ekki  fylgt nein vandamál.

Fréttir hafa borist af því að Íslendingar í nágrannalöndum Íslands hafi síðustu daga átt í miklum erfiðleikum með að taka peninga út úr hraðbönkum.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert