Ekki staðfest með bankastjórann

Friðrik Tryggvason

Búið er að skipa stjórn Nýja Glitnis, félagsins sem tekur við rekstri Glitnis. Formaður er Jón Þór Sturluson, sem er aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. Auk hans eru í stjórninni Þóra Hjaltested, Guðjón Ægir Sigurjónsson, Maríanna Jónsdóttir og Sigmundur Sigurgeirsson.

Ekki hefur fengist staðfest hjá Fjármálaeftirlitinu hver verður bankastjóri en Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis hefur verið orðuð við starfið, eins og kom fram á mbl.is s.l. föstudag.

Ekki er enn ljóst hvort tilkynning um stofnun Nýja Glitnis og ráðningu bankastjórans verður birt síðar í dag eða á morgun, að sögn Úrsúlu Ingvarsdóttur hjá Fjármálaeftirlitinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert