Ekki niðurstaða í Moskvu

Íslenskir embættismenn í Moskvu í gær.
Íslenskir embættismenn í Moskvu í gær. Reuters

Rússneskir og íslenskir embættismenn segja í yfirlýsingu, sem gefin var út í Moskvu í dag, að Rússar hafi samþykkt að halda áfram viðræðum um að veita Íslendingum lán. Hins vegar kemur ekki fram hvenær viðræðunum verður haldið áfram. Viðræðurnar hófust í gær.

Á fundinum í Moskvu var skipst á upplýsingum, farið yfir núverandi stöðu á fjármálamörkuðum og staða Íslands rædd sérstaklega.

Í yfirlýsingunni segir, Dimitrí Pankin, aðstoðarfjármálaráðherra Rússa: „Fundirnir voru mjög vinsamlegir og við höfum fræðst mikið um stöðu Íslands, bankakerfi landsins og íslenska hagkerfið. Við munum fara ofan í saumana á málunum áður en við tökum lokaákvörðun.“

Sturla Pálsson,  framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans, sem fór fyrir íslensku nefndinni, sagði eftir fundinn: „Við erum ánægð með framgang mála og þakklát fyrir hversu fljótt hinir rússnesku viðsemjendur féllust á að hitta okkur og ræða um hið mögulega lán. Við kynntum fyrir þeim Ísland sem fjárfestingarkost þar sem við teljum sem fyrr að undirstöður íslenska efnahagskerfisins séu traustar og að við munum standa af okkur þann storm sem nú geisar á fjármálamörkuðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert