Snjókoma á Hellisheiði og Þrengslum

Éljagangur er á Reykjanesbraut og Suðurnesjum og víða komið slabb á vegum. Þá er snjókoma og hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Eins er hálka, hálkublettir eða krapi nokkuð víða á Suðurlandi. Á Vesturlandi er  éljagangur á Snæfellsnesi og  einhver hálka eða krapi samfara því.

Á Vestfjörðum er þæfingsfærð á Hrafnseyrarheiði og Þorskafjarðarheiði en annars staðar ýmist hálka eða hálkublettir. Á Norðurlandi er nokkur hálka, einkum í kring um Eyjafjörð og utanverðan Skagafjörð.  Lágheiði er ófær. Á Austurlandi eru víða hálkublettir en þungfært á Hellisheiði eystri. Með suðausturströndinni er nú víða éljagangur, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert