Jöfnunarsjóður greiðir út 2 milljarða

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga lýkur á mánudag við að greiða framlög að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar til sveitarfélaga í landinu en framlögin áttu að berast sveitarfélögunum um næstu  mánaðamót. Greiðslunum er flýtt til að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga.

Fram kemur í tilkynningu frá samgönguráðuneyti, að Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hafi boðað á fyrsta ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 17. október síðastliðinn að flýtt yrði greiðslu umræddra framlaga Jöfnunarsjóðs. Hafi starfsmenn sjóðsins og samgönguráðuneytisins unnið hörðum höndum að útreikningi og greiðslu framlaganna síðustu daga.

Einnig sagði Kristján á fundinum að stefnt yrði að því að greiða í nóvember 250 milljónir króna af eftirstöðvum vegna 1400 milljóna króna aukaframlags í Jöfnunarsjóð á árinu en nú þegar er búið að greiða 900 milljónir.

Þá er í samgönguráðuneytinu verið að vinna frá tillögum að reglum fyrir úthlutun 250 milljóna króna framlags til sveitarfélaga vegna skerðingar á aflamarki og verða reglurnar kynntar fljótlega.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert