Geir sagður óttast fimm ára bakslag

Geir H. Haarde með Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands.
Geir H. Haarde með Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands. LEHTIKUVA

Haft er eftir Geir H. Haarde, forsætisráðherra Íslands, á vef norska blaðsins Aftenposten í dag að hann óttist að íslenskt efnahagslíf fari fimm ár aftur í tímann vegna efnahagskreppunnar. Þá segir að hann sé ánægður með þau samtöl sem hann hafi átt við ráðamenn á Norðurlöndum þrátt fyrir að þau hafi ekki leitt til beinnar efnahagsaðstoðar. 

Tekið er fram að Geir leggi áherslu á að ekki hafi verið til þess ætlast að Norðurlöndin aðstoðuðu Íslendinga með fjárframlögum og að höfuðmáli skipti að Íslendingar finni fyrir stuðningi nágranna sinna og skilningi á því hversu alvarlegt ástandið sé. 

Farið er yfir stöðuna í efnahagsmálum Íslendinga í forystugrein á Aftenposten og greint frá því að enn hafi ekki verið útilokað að Íslendingar fái lán frá Rússum eða Japönum. Þá segir að íslensk yfirvöld hafi sætt harðri gagnrýni fyrir skort á eftirliti með hinu skammvinna útrásarævintýri bankanna og að staðan á Íslandi hafi vakið upp umræður um hættuna sem fylgi því þegar smæð samfélags geri það að verkum að stutt sé á milli ráðandi afla í stjórnmálum annars vegar og atvinnulífi hins vegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert