Hvetur fólk til að fara í bólusetningu fyrir inflúensu

Tvö tilfelli innflúensu hafa greinst í ágúst og september hérlendis og er það merki um að flensan sér farin að hreiðra um sig, þótt ekki sé enn neinn faraldur í gangi. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir hvetur fólk til þess að nota tækifærið að láta bólusetja sig áður en innflúensan nær sér á strik.

Sérstaklega er fólk sem starfar á heilbrigðis- og umönnunarsviði hvatt til að fara í bólusetningu. „Það er vel þekkt að þeir sem annast veikt eða aldrað fólk geti borið innflúensu með sér inn á stofnanir," bendir Haraldur á. „Það hefur sýnt sig að bólusetning starfsfólks á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum er mjög gagnlegt aðgerð."

Þau skilaboð hafa hinsvegar borist frá áhyggjufullum forsvarsmönnum heilsugæslustöðva að fólk hafi almennt lítinn áhuga fyrir bólusetningum. „Yfirleitt kviknar áhugi fólks ekki á bólusetningum fyrr en innflúensan er komin," útskýrir Haraldur. „En ég tel upplagt að fólk noti tækifærið núna og láti bólusetja sig. Við höfum greint tvö innflúensutilvik af A og B stofni, þannig að innflúensan er til staðar og er að búa um sig. Við höfum því reiknað með að hún gæti komið fyrr en venjulega þetta árið."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert