Rafræn umsókn um atvinnuleysisbætur

Vinnumálastofnun mun á morgun opna fyrir rafræna umsókn um atvinnuleysisbætur. Unnið hefur verið að undirbúningi þess síðustu vikur. Verður vefgáttin sett upp til reynslu á morgun og er vonast til að hún komist í fulla virkni strax í næstu viku.

Umsækjendur um atvinnuleysisbætur geta þar með skráð sig á vef Vinnumálastofnunar en þurfa eftir sem áður að afla nauðsynlegra vottorða og fylgigagna, skila þeim inn á næstu þjónustuskrifstofu innan 14 daga og skrifa undir umsóknina til að hún verði tekin til afgreiðslu.

Stofnunin segir, að vonast sé til að þetta auðveldi ferlið fyrir umsækjendur og minnki jafnframt álag á starfsfólk í móttöku hjá Vinnumálastofnun nú á tímum vaxandi atvinnuleysis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert