Fleiri hringja í Kvennaathvarfið vegna ofbeldis

Fleiri konur hafa leitað í Kvennaathvarfið að undanförnu
Fleiri konur hafa leitað í Kvennaathvarfið að undanförnu mbl.is/Jim Smart

Konur hafa í auknum mæli hringt í Kvennaathvarfið vegna ofbeldis af hálfu sambýlismanna eða eiginmanna og tengja þær það við álag vegna efnahagsþrenginganna, að sögn Hlífar Magnúsdóttur, starfskonu í Kvennaathvarfinu. Hætta sé á að heimilisofbeldi aukist í efnahagssamdrætti og starfskonur kvennaathvarfsins séu farnar að verða varar við það.

Enn sem komið er hafa vísbendingar um aukið ofbeldi einkum komið fram í símtölum við konur en ekki í aukinni aðsókn í athvarfið. „Við erum að búa okkur undir að það eigi virkilega eftir að aukast aðsókn hingað, því það gerist alltaf þegar svona er,“ segir Hlíf.

Undirbúningur Kvennaathvarfsins felst m.a. í því að búið er að taka húsið í gegn og fjölga rúmum. Hlíf segir að húsið hafi verið þéttskipað nánast allt þetta ár og aðsóknin sé mun meiri en í fyrra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert