Verður alltaf íslensk rannsókn
eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Söfnun gagna er hætt í bili vegna rannsóknar á viðskiptabönkunum á síðustu vikum starfsemi þeirra. Í fyrradag hætti Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, frumrannsókn á þessu eftir að óhlutdrægni hans var dregin í efa í fjölmiðlum. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari, sem fékk Boga til verksins, segir að ákveðið verði í dag eða á næstu dögum hvernig rannsókninni verður haldið áfram.
Bogi hefur lýst þeirri hugmynd að til verksins verði fengnir erlendir réttarendurskoðendur (e. forensic auditors). Sérfræðifyrirtækjum á því sviði verði heimilað að gera tilboð í rannsóknina. Valtýr segir þetta hafa verið hugmynd þeirra Boga allt frá byrjun. Hann hafi m.a. lýst henni fyrir allsherjarnefnd Alþingis 23. október síðastliðinn. Hins vegar sé það ekki einfalt mál og nauðsynlegt að afmarka rannsóknina með einhverjum hætti fyrst. Annars væri hún eins og óútfyllt ávísun sem gæti kostað ríkið nokkur hundruð milljónir.
Aðspurður segir Valtýr það ekki koma til greina að rannsóknin verði á ábyrgð erlendra aðila, og Íslendingar aðstoði aðeins við gerð hennar, en ekki öfugt. Til þess sé verkið of umfangsmikið að fara að vinna það frá grunni nú. „Þessi rannsókn myndi alltaf byggjast á þeirri gríðarlegu vinnu sem hefur þegar farið fram hjá FME og fleiri stofnunum. Svo yrði þetta auðvitað í samvinnu við innlenda sérfræðinga og undir stjórn ríkissaksóknara eða þess aðila sem þá færi með ákæruvald.“
Bloggað um fréttina
-
Róbert Tómasson Valtýr "á villigötum" Sigurðsson -
Heidi Strand Spilling og hungur -
Sigríður Hulda Richardsdóttir Spilling -
Þorleifur Magnús Magnússon. ( Brói ) Eru menn ennþá að halda í bananaríkið.? -
Jón Þór Bjarnason Við alltaf bláeyg... og: Burt með spillingarliðið! -
Hulda Elma Guðmundsdóttir Auðvitað á rannsóknin að vera íslensk
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. október 2008, Innlent Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína
- Föstudagur, 24. október 2008, Innlent Bogi Nilsson stýrir gerð bankaskýrslunnar
- Laugardagur, 14. mars 2009, Innlent Andlátið skoðað aftur
- Föstudagur, 12. júní 2009, Innlent Ríkissaksóknarinn hyggst ekki víkja
- Miðvikudagur, 10. júní 2009, Innlent Ekki hrifin af hugmynd um sérskipaðan ríkissaksóknara
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































