Allt að tuttugu ný sérfræðistörf fyrir austan
Allt að tuttugu ný störf tækni- og verkfræðinga skapast við álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði vegna samnings HRV Engineering og Alcoa. Samkvæmt samningnum mun HRV sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið. Hún snýr meðal annars að þróun og innleiðingu tækninýjunga, viðhaldi, umhverfismálum, öryggi, velferð starfsmanna og ýmsu öðru sem tengist rekstri og starfsemi álversins.
Sérfræðingar HRV Engineering munu starfa í álverinu en njóta stuðnings frá skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík og skrifstofum Mannvits og Verkíss á Egilsstöðum. Verðmæti samningsins nemur hundruðum milljóna króna á ári.
„Nýting endurnýjanlegra orkuauðlinda Íslands til álframleiðslu hefur skapað gríðarlega sérþekkingu á þessu sviði á Íslandi og verið grundvöllur fyrir vöxt HRV Engineering sem þekkingarfyrirtækis. Nýr samningur við Alcoa Fjarðaál tryggir áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna og mikilvæga þekkingarmiðlun í báðar áttir milli Austurlands og höfuðstöðva okkar í Reykjavík. Samningurinn er því einnig mikilvægur fyrir áframhaldandi útflutning HRV Engineering á þekkingarverðmætum sem sköpuð hafa verið í íslenskum áliðnaði,“ segir Símon Þorleifsson, sem stýrir ráðgjöf vegna rekstrar og viðhalds álvera hjá HRV Engineering.
„Álframleiðsla er flókið ferli og álver í dag eru í raun jafnt þekkingarfyrirtæki og framleiðslufyrirtæki. Samningurinn við HRV Engineering er liður í þeirri stefnu Alcoa Fjarðaáls að útvista sem mest af verkefnum til samstarfsaðila. Markmiðið með þeirri stefnu er að skapa umhverfi fyrir starfsemi annarra fyrirtækja á svæðinu, sem er mjög mikilvægt fyrir uppbyggingu sjálfbærs samfélags á Austurlandi,“ segir Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupa hjá Alcoa Fjarðaáli.
Bloggað um fréttina
-
Hallur Magnússon #9541 Álverið hennar Valgerðar ljósið í kreppunni! -
Gunnar Th. Gunnarsson Er þetta ekki bara tómt píp? -
Ólafía Herborg Jóhannsdóttir Gleðilegar fréttir -
Hulda Elma Guðmundsdóttir Kreppan minnst fyrir austan -
Marinó Már Marinósson Tuttugu ný sérfræðistörf við álverið í Reyðarfirði
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Innlent Fleiri störf hjá Alcoa
- Fimmtudagur, 13. desember 2007, Innlent Byggingu álversins í Reyðarfirði lokið
- Laugardagur, 5. apríl 2008, Innlent Raforkan ræður stærð
- Fimmtudagur, 3. apríl 2008, Innlent Undirbúningur álvers á Bakka
- Miðvikudagur, 7. nóvember 2007, Innlent Þarfir Alcoa réðu verktíma
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































