Samþykktu tillögu formanns

Gunnar Páll Pálsson (t.h.) á tali við félagsmann í VR …
Gunnar Páll Pálsson (t.h.) á tali við félagsmann í VR að fundinum loknum. mbl.is/Kristinn

Félagsfundur VR, sem haldinn var á Grand Hóteli í kvöld, samþykkti tillögu sem Gunnar Páll Pálsson formaður bar upp. Hún var þess efnis að trúnaðarráð verði kallað saman innan tveggja vikna og að í kjölfarið verði stjórnarkjöri flýtt. 

Gunnar Páll sagði í samtali við mbl.is eftir fundinn að verði gengið til kosninga þá gætu þær orðið í janúar næstkomandi. Hann var kosinn formaður á liðnu vori til tveggja ára en Gunnar Páll sagði að þá verði einnig kosið um formann. Aðalfundur félagsins gæti síðan orðið í mars næstkomandi. En var fundurinn erfiður?

„Hann var að minnsta kosti fjörugur og margir sem tóku til máls enda  stóð fundurinn í tvo og hálfan tíma,“ sagði Gunnar Páll.

Fundurinn samþykkti einnig tillögu þess efnis að hafin verði vinna við reglur um setu fulltrúa VR í stjórnum og siðareglur þeirra.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert