Hélt úr höfn án lögskráningar og trygginga
Varðskip Landhelgisgæslunnar stöðvaði á föstudag íslenskt skip á leið til Noregs og færði til hafnar í Þorlákshöfn. Enginn skipverja um borð var lögskráður, engin áhafnartrygging var í gildi og skipstjóri hafði ekki tilkynnt brottför, líkt og reglur segja til um.
Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að þetta sýni hve brýnt sé að hafa varðskip Landhelgisgæslunnar við eftirlit og löggæslustörf á hafi úti.
Varðskip LHG hafði samband við stjórnstöð LHG til að grennslast fyrir um skip á suðurleið undan Sandvík. Stjórnstöð taldi skipið vera við höfn í Reykjavík en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að svo var ekki.
Haft var samband við skipið og í ljós kom að það hélt úr Reykjavíkurhöfn á föstudagsmorgunn og var á leið til Noregs með erlenda áhöfn um borð, var skipið þó skrásett á Íslandi og bar þar af leiðandi að fylgja íslenskum lögum.
Stýrimenn varðskipsins fóru um borð í skipið til eftirlits. Fjórir erlendir menn voru um borð, skipstjóri, stýrimaður og tveir vélstjórar. Engin áhafnartrygging var í gildi, enginn skipverji lögskráður og gat aðeins skipstjóri framvísað norsku skírteini. Hafði skipið ekki tilkynnt sig til stjórnstöðvar LHG samkvæmt reglum þar að lútandi.
Var skipinu beint til Þorlákshafnar, auk þess sem lögreglu og Siglingastofnun var gert viðvart. Hélt skipið síðan úr höfn á laugardag eftir að gengið var frá málum þess hér á landi og komin var lögskráð áhöfn um borð.
Í tilkynningu LHG segir að fjareftirlit stjórnstöðvar LHG tryggi ákveðið öryggi sjófarenda en tilgangur þess er jafnframt að halda uppi löggæslu á sjó. Með þessu móti sé fylgst með skipaumferð og ef skip tilkynna ekki ferðir sínar megi segja að þau séu á eigin ábyrgð. Það geti í það minnsta seinkað björgunaraðgerðum ef neyðarsendir fer í gang á svæði þar sem ekki er vitað um neitt skip á sjó.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. október 2007, Innlent Varðskip á leið í land með vélarvana skip
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Rætt um aukið samstarf
- Þriðjudagur, 7. október 2008, Innlent Varðskip til aðstoðar færeyskum togara
- Föstudagur, 30. janúar 2009, Innlent Hætt að hlusta á gamla neyðarsenda
- Þriðjudagur, 27. nóvember 2007, Innlent Axel kominn af strandstað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































