Ónýtur banki bjargar ónýtri krónu
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur Mbl Sjónvarpi. tka@mbl.isMargir ráðherrar voru fjarverandi þegar rætt var um lánið frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum í þinginu. Einungis forsvarsmenn stjórnarflokkanna voru viðstaddir megnið af tímanum, Þingmenn Samfylkingar deildu áfram hart á forsætisráðherra fyrir að halda hlífiskildi yfir seðlabankastjóra. Geir H. Haarde sagði hinsvegar að ekkert væri upp á Seðlabankann að klaga. Hann sagði að fagmenn Seðlabankans hefðu undirbúið að setja krónuna á flot og það yrði gert á næstu dögum. Menn hefðu unnið vinnuna sína í þeim banka.
Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar sagði að þótt trúmennska væri sannarlega dyggð, mætti of mikið af öllu gera. Það hvíldi á trúverðugleika hvort þær aðgerðir sem ráðist yrði í tækjust eða ekki. Hann sagði forystumenn og þingmenn úr öllum flokkum hafa lýst því yfir að það væri nauðsynlegt að gera breytingar á yfirstjórn Seðlabankans og styrkja hann faglega.
Siv Friðleifsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins sagði ríkisstjórnina óstarfhæfa. Hún væri mállaus að horfa upp á þetta. Stjórnarflokkarnir skiptust á að fara í pontu og berja hvorn annan með Seðlabankanum.
Þingmenn hrópuðu á Siv úr salnum og spurðu hvort hún hefði ekki verið á miðstjórnarfundi í Framsóknarflokknum.
Siv hélt áfram og sagðist vorkenna forsætisráðherra að þurfa að sitja undir þessu. Hann væri að reyna að standa vaktina en samstarfsflokkurinn réðist á hann í beinni útsendingu. Hún sagðist ætla að sleppa því að tala í annarri umferð enda hefði hún ekki lyst á því.
Formaður Vinstri grænna virtist ekki vorkenna forystumönnum ríkisstjórnarinnar. Að minnsta kosti hindraði það hann ekki í að taka til máls. Hann sagði að það væri boðað að lánið stóra yrði jafnvel notað í einhverja tilraun til þess að stýra gengi krónunnar. Það væri stórhættulegt. Hvað ef það mistækist og tugir eða hundruðir milljarðar færu forgörðum. Þá væri verr af stað farið en heima setið.
Og Steingrími fannst skjóta skökku við að Samfylkingin kæmi að björgun krónunnar. Og spurði hver þessi íslenska króna væri sem ætti að bjarga fyrir sjöhundruð milljarða. Jú, hann sagði að það væri sama krónan og Samfylkingin notaði alla orku sína til að segja að væri ónýt. Hún segði Seðlabankann ónýtan og trausti rúinn en hann ætti samt að fá það verkefni að koma krónunni á réttan kjöl.
Bloggað um fréttina
-
-
Heimir L Fjeldsted Minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks -
Valdimar Sigurjónsson Loksins góð frétt! -
Guðbjörn Jónsson Er krónan ónýt ?????? -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Þingmenn brugðust -
Torfi Magnússon Fagmenn seðlabanka og bankastjórn??????? -
Bara Steini Leikskólabörn á þingi.... -
Guðjón Sigþór Jensson Vetrarkosningar -
Gísli Foster Hjartarson Ónýtir þingmenn... -
Guðmundur Auðunsson Flauelsbyltingin í Tékkóslóvakíu -
Gunnar Th. Gunnarsson Og krónan flýtur eins og kúkur í lauginni
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Nýja Seðlabankastjórn
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Miðvikudagur, 29. október 2008, Innlent Ekki benda á mig
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































