Undirbúa vantrauststillögu

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/G. Rúnar

Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa rætt saman undanfarna daga um möguleikann á því að flytja tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, sem allra fyrst. Fram kemur á vefritinu Smugunni, að hugsanlegt sé að vantrauststillagan komi fram á Alþingi strax í dag.

Í slíkri tillögu yrði lagt til að þing verði rofið innan tíðar og kosningar til Alþingis verði á fyrstu mánuðum næsta árs en ekki í vor.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert