Týndust í Svínadal

Hefja átti leit að tveimur 10 ára drengjum.
Hefja átti leit að tveimur 10 ára drengjum. mynd/Hafþór Hreiðarsson

Björgunarsveitir í Borgarnesi voru kallaðar út í dag vegna tveggja tíu ára drengja.  Voru drengirnir týndir í um þrjá og hálfan tíma, en þeir höfðu haldið einir í fjallaleiðangur í Svínadal.  Komu þeir arkandi niður sjálfir er klukkan var að ganga þrjú. Voru björgunarsveitir þá á leiðinni á vettvang til að hefja leit að drengjunum, enda orðið stutt í myrkur.

Strákarnir voru vel klæddir að sögn lögreglunnar í Borgarfirði, en var þó orðið nokkuð kalt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert