Dönsk herþyrla í viðhaldi á Íslandi

Hluti af teyminu sem kemur að viðhaldi þyrlunnar
Hluti af teyminu sem kemur að viðhaldi þyrlunnar

Lynx þyrla af danska varðskipinu Triton kom nýverið til viðhalds í skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Fá flugvirkjar þeirra að nota aðstöðu Gæslunnar en um tíu manns fylgja þyrlunni, þ.e. flugmenn, flugvirkjar og aðrir tæknimenn.

Mikil samvinna hefur ætíð verið á milli Landhelgisgæslunnar og varðskipa danska flotans sem eru við gæslustörf á hafinu umhverfis Grænland, að því er segir í tilkynningu.
 
Fer þyrlan að viðhaldi loknu um borð í varðskipið Hvidbjörnen sem kom til Reykjavíkur á föstudag en gert er ráð fyrir að skipið sigli á morgun áleiðis til Grænlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert