Aðgerðirnar kynntar eftir helgi
Ríkisstjórnin mun skýra frá þeim aðgerðum sem hún hyggst grípa til í því skyni að koma fyrirtækjum landsins til hjálpar eftir helgina, að sögn Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarmanns forsætisráðherra.
Fulltrúar atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og sveitarfélaga komu saman til fundar með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í dag til að fara yfir stöðu mála.
Gréta segir fundinn hafa verið gagnlegan, en auk Geirs H. Haarde forsætisráðherra sátu hann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra.„Það var farið vel yfir marga hluti. Menn voru að lýsa stöðunni eins og hún blasir við þeim og hvaða aðgerðir þeim finnst aðkallandi að ráðast í. Menn lýstu yfir vilja til samráðs á báða bóga,“ segir Gréta.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, sat fundinn í Ráðherrabústaðnum.
Aðspurður um efni fundarins segir Gylfi að þrýst hafi verið á ríkisstjórnina að skýra frá þeim aðgerðum sem hún hyggst grípa til í því skyni að koma fyrirtækjum landsins til hjálpar.
„Samtök á vinnumarkaði, launamegin og atvinnuveitendamegin, funduðu í gær og þessi fundur í dag var framhald á því. Við vorum ásamt fulltrúum Samtaka atvinnulífsins ákveðin í að fá fram upplýsingar um hvar það markmið ríkisstjórnarinnar væri statt sem kynnt var fyrir tveimur vikum um aðgerðir gagnvart fyrirtækjunum. Við erum alveg sammála Samtökum atvinnulífsins í því að það er ákaflega mikilvægt að fá slíkar aðgerðir fram sem fyrst, vegna þess að það er verið að segja upp okkar fólki í þúsundavís. Það er mikilvægt að ríkisstjórnin grípi til aðgerða, láti þetta ekki bara gerast."
Gylfi segir það vilja ASÍ að halda samþykkta kjarasamninga.
„Það er ljóst að Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa kjarasamning til nóvemberloka 2010. Það er ákveðin samstaða meðal okkar að það séu verðmæti í þeim samningi sem ber að halda í gildi. Þótt að forsendur hans séu brostnar eru í honum ákveðin verðmæti fyrir okkar fólk og fyrir fyrirtækin," segir Gylfi, sem vísar til komandi fjárlaga.
„Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur samtök launafólks og fyrirtækin að sjá í fjárlögin og hvað stjórnvöld hyggjast gera á næsta ári. Þess vegna þótti mikilvægt að fá fram upplýsingar um þær aðgerðir sem grípa á til fyrirtækjunum til hjálpar í þessu formlega samráði stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaganna, sem hafa ekki tekið formlega þátt í viðræðunum áður,“ segir Gylfi, sem kveðst vænta þess að fjárlögin verði lögð fram í næstu viku.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson var þessari mynd stillt sérstaklega upp í áróðursskyni? -
Jóhannes Ragnarsson Henni verður hjálpað ef á þarf að halda -
Gestur Guðjónsson Skrítin forgangsröðun ríkisstjórnarinnar -
Guðbjörn Guðbjörnsson Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sýnir styrk og djörfung -
Friðrik Þór Guðmundsson Póstar fyrir stjórnvöld að skera niður... -
Baldvin Jónsson Stóra alkunna leyndarmálið -
Heiða B. Heiðars Sprungið -
Guðmundur Ragnar Björnsson Of lítið og of seint -
Vilborg Traustadóttir Ástandið er grafalvarlegt -
Ívar Pálsson Evran upp um 50% á 3 mánuðum -
Johann Trast Palmason Húrra ! Húrra ! -
Hulda Elma Guðmundsdóttir Hver er Gréta Ingþórsdóttir? -
Hvíti Riddarinn Löng bið eftir kraftlausu "prumpi" -
Júlíus Björnsson Það tók tímann sinn -
Þórarinn Þ Gíslason ÞETTA ER ÞAÐ SEM Á AÐ HAFA FORGANG ÁSAMT HEIMILINUM,ÉG ... -
Sigrún Jónsdóttir Okkar aðgerðir munu líka virka....sjáið bara til :=) -
Jenný Anna Baldursdóttir Af hverju valdi ég ekki Galapagoseyjar? -
Valdimar Sigurjónsson Ætli lýsingarorðið "umfangsmiklar" sjáist aftur? -
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 5. október 2008, Innlent Fundum haldið áfram í Ráðherrabústaðnum
- Fimmtudagur, 22. janúar 2009, Innlent SA: Skapa þarf 20 þúsund ný störf
- Sunnudagur, 10. maí 2009, Innlent Trúverðugt plagg
- Föstudagur, 7. nóvember 2008, Innlent Jóhanna: Mun reyna á ríkisstjórnarflokkana
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Sér fyrir endann á hrunsferli
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli






































