Boða þjóðfund á Arnarhóli

Borgarahreyfing um Þjóðfund 1. des. hvetur alla landsmenn til að sýna samstöðu og krefjast breytinga á stjórn landsmála og breytinga á stjórnsýslu með því að leggja niður vinnu og mæta á Þjóðfund á Arnarhóli kl. 15 mánudaginn 1. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hreyfingin hefur sent frá sér. 

Þar kemur einnig fram að Borgarahreyfingin er regnhlífarsamtök þeirra hópa og einstaklinga sem hafa haft sig í frammi opinberlega undanfarnar vikur vegna þess gjörningaveðurs sem fjármálamenn, stjórnvöld og embættismenn hafa kallað yfir þjóðina.

Borgarahreyfingin stendur algerlega utan við alla stjórnmálaflokka og telur að núverandi stjórnvöld sem og stjórnarandstaða hafi glatað trausti landsmanna.


Frummælendur á fundinum á morgun eru í stafrófsröð:
       
Einar Már Guðmundsson rithöfundur
Lárus Páll Birgisson sjúkraliði
Margrét Pétursdóttir verkakona
Snærós Sindradóttir nemi
Þorvaldur Gylfason hagfræðingur

Blaz Roca (Erpur) rappar um þjóðmál


Fundarstjóri verður Edward Huijbens landfræðingur



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert