Skrifaði undir samning um klasasprengjubann

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, á leið úr ræðustóli eftir að …
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, á leið úr ræðustóli eftir að hafa flutt ræðu í ráðhúsi Óslóarborgar í dag. Reuters


Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, undirritaði í  dag alþjóðlegan samning um bann við klasasprengjum. Samningurinn bannar þróun, framleiðslu, notkun, birgðasöfnun og afhendingu klasasprengja. Samningurinn var undirritaður af hálfu 125 ríkja í dag.

Noregur, Perú, Austurríki, Nýja Sjáland og Írland fóru fyrir gerð samningsins um bann við klasasprengjum en Ísland hefur frá upphafi tekið þátt í samningsferlinu. Þá hafa Rauði Krossinn og önnur frjáls félagasamtök einnig beitt sér fyrir banninu.

Ísland hefur aðstoðað önnur ríki við hreinsum klasasprengjusvæða, nú síðast Líbanon.  Ísland hefur einnig aðstoðað fórnarlömb jarð- og klasasprengja, m.a. með því að styrkja smíði gerfilima.  Samningurinn sem undirritaður var í dag gerir ráð fyrir áframhaldandi alþjóðasamstarfi á þessu sviði, bæði hreinsun svæða þar sem klasasprengjum hefur verið beitt, svo og aðstoð við fórnarlömb.  Mikið starf er einnig framundan við eyðingu birgða.


Ingibjörg Sólrún skrifar undir sáttmálann. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra, fylgist …
Ingibjörg Sólrún skrifar undir sáttmálann. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra, fylgist með.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert