Svæðissendingar halda áfram

Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Páll Magnússon, útvarpsstjóri. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkisútvarpið hefur ákveðið að draga til baka áform um að leggja af svæðisbundnar fréttasendingar frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Segir í tilkynningu frá stofnuninni, að síðustu daga hafi fjölmargir hollvinir svæðissendinganna hvatt til þess að ekki verði gripið til þessara sparnaðaraðgerða þrátt fyrir erfiða rekstrarstöðu Ríkisútvarpsins. Ljóst sé að hlustendur á landsbyggðinni telji svæðissendingarnar veigamikinn þátt í þjónustu RÚV.
 
Segir RÚV að þetta hafi endurspeglast í vaxandi auglýsingatekjum á svæðisstöðvunum að undanförnu þrátt fyrir almennan samdrátt í sölu auglýsinga. Fjölmargir viðskiptavinir á landsbyggðinni hafi haft samband síðustu daga og lýst yfir miklum vonbrigðum með að missa þann mikilvæga auglýsingamiðil sem svæðisstöðvarnar eru.  Í framhaldinu hafi farið fram endurmat á tekjuáætlunum á svæðisstöðvunum og sé niðurstaðan að væntanlegar tekjur muni duga til að halda útsendingunum áfram.
 
Svæðisstöðvarnar heyra undir Fréttastofuna og hafði henni verið ætlað að ná fram verulegum sparnaði. Meðal þess sem blasti við var að draga þyrfti úr  kostnaði við svæðisstöðvarnar. Nú hafi verið ákveðið að endurskipuleggja fréttaöflunina á landsbyggðinni til að tryggja að svæðissendingarnar geti haldið áfram. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert