Vilja nýja stjórnmálaflokka
Tæp 8% aðspurðra segjast vilja kjósa aðra flokka en buðu fram í síðustu alþingiskosningum, samkvæmt niðurstöðum könnunar Markaðs- og miðlarannsókna, MMR, sem gerð var dagana 2. til 5. desember.
Þetta er hærra hlutfall en fylgi Frjálslynda flokksins í síðustu alþingiskosningum. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú tveimur prósentustigum lægra en það mældist í október en fylgi Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs helst næsta óbreytt. Fylgi Framsóknarflokksins fellur um nærri helming frá síðustu könnun og litlar breytingar mælast á fylgi Frjálslynda flokksins. Fylgi Íslandshreyfingarinnar eykst hins vegar.
Vinstri hreyfingin grænt framboð er stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt könnun MMR, mælist með mest fylgi eða 30%. Í könnun MMR mældist fylgi VG 29,7% en í kosningunum í fyrra fékk VG 14,3% fylgi.
Samfylkingin mælist næst stærst, með 27,1% en var með 27,3% í október. Kjörfylgi Samfylkingarinnar í fyrra var 26,8%.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 25,7% fylgi og dalar frá síðustu könnun. Í október mældist fylgi Sjálfstæðisflokks 27,8% en í kosningum fékk flokkurinn 36,6% fylgi.
Framsóknarflokkurinn mælist með 4,9% fylgi en var með 9,2% í október og 11,7% í kosningunum 2007. Sé fylgi Framsóknarflokks skoðað út frá búsetu kemur í ljós að flokkurinn mælist með 2,5% fylgi á höfuðborgarsvæðinu en 9,2% á landsbyggðinni.
Frjálslyndi flokkurinn mælist með 3% nú en fylgið mældist 3,5% í október. 7,3% kusu Frjálslynda flokkinn í síðustu kosningum.
Íslandshreyfingin mælist með 1,6% fylgi en fylgið mældist 0,7% í október. Íslandshreyfingin fékk 3,5% í síðustu kosningum.
Athygli vekur að 7,7% segjast nú vilja kjósa aðra flokka en buðu fram í síðustu kosningum en 2,5% sögðust í október vilja aðra flokka en buðu fram fyrir alþingiskosningarnar 2007.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um nærri fjórðung
Samkvæmt könnun MMR mælist stuðningur við ríkisstjórnina nú rétt um 11% minni en í október og stendur í 34,5%. Athygli vekur að stuðningur við ríkisstjórnina meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Samfylkinguna minnkar töluvert, eða úr 62,2% í október í 52,5% nú.
Könnun MMR var síma- og netkönnun. 2464 einstaklingar á aldrinum 18 til 67 svöruðu.
Bloggað um fréttina
-
Hólmdís Hjartardóttir Tækifæri fyrir Valgerði Bjarnadóttur -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Uppgangur vinstri-öfgamanna verður að linna ! -
Vésteinn Valgarðsson Vantar nýjan valkost -
Ágúst Hjörtur Foyrsta Samfylkingarinnar þarf að hlusta -
Einar Sigvaldason Þessi 8% fyrirsögn er villandi -
Júlíus Björnsson Samfylking sterk -
Theódór Norðkvist Hvers vegna kýs fólk ekki nýja stjórnmálaflokka? -
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir Flokka hvað... -
Þorkell Sigurjónsson ENNÞÁ ERU VINSTRI GRÆNIR STÆRSTI FLOKKUR LANDSINS. -
Ómar Ragnarsson Erfitt að lesa út úr þessum 8%. -
Haraldur Hansson Minnkandi þolinmæði Samfylkingarmanna -
Vilborg Traustadóttir Klúðrarar -
Þórarinn Þ Gíslason ÉG VILL ÞJÓÐ MINNI VEL OG VILL EKKI ÓHREINU HENDURNAR ... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hærra hlutfall en fylgi Íslandshreyfingarinnar sem ekki kom manni á ... -
-
Hörður B Hjartarson Ekkert flokkakjaftæði -
Baldvin Jónsson Er raunin sú að bara 8% vilji kjósa eitthvað nýtt?
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á ný
- Fimmtudagur, 22. janúar 2009, Innlent Framsókn með 17% fylgi
- Föstudagur, 6. mars 2009, Innlent Fylgi Samfylkingar eykst
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Innlent Stuðningur við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eykst
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Samfylking áfram stærst
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































