Fjöldi flytjenda

Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson voru í hátíðarskapi.
Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson voru í hátíðarskapi. Eggert Jóhannsson

Jólagestir Björgvins Halldórssonar glöddu eyru tónleikagesta í Laugardalshöllinni síðdegis í dag. Tónleikarnir voru endurteknir í kvöld. Meðal jólagesta Björgvins er óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd fór vel á með þeim félögum á sviði Laugardalshallar í dag.

Einnig komu fram gestasöngvararnir Eyjólfur Kristjánsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Helgi Björns, Kristján Jóhannsson, Krummi Björgvins & Daníel Ágúst, Laddi, Páll Óskar & Monika, Raggi Bjarna, Sigga Beinteins, Stefán Hilmarsson og Svala Björgvins, fjöldi hljóðfæraleikara og kórar af ýmsum gerðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert