Forstjóri Fjármálaeftirlits með 1,7 milljónir í laun

mbl.is/Eyþór

Forstjóri  Fjármálaeftirlitsins fær 1,7 milljónir króna í mánaðarlaun og aðstoðarforstjóri rúmlega 1,25 milljónir. Þá eru föst mánaðarlaun sviðsstjóra hinna fjögurra sviða á bilinu 855.675– 968.327 krónur á mánuði.

Þetta kemur fram í svari Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra til Atla Gíslasonar, þingmanns VG, á Alþingi.

Að auki nýtur forstjórinn sérstaks viðbótarframlags í lífeyrissjóð umfram almenn framlög, samtals 6,5% af föstum mánaðarlaunum.

Mánaðarleg þóknun stjórnarformanns stofnunarinnar er 260.000 krónur, þóknun almennra stjórnarmanna 130.000 krónur  og þóknun varastjórnarmanna 90.000 krónur. Frá stofnun Fjármálaeftirlitsins hefur varamönnum í stjórn verið gert að sitja alla stjórnarfundi og taka þátt í afgreiðslu mála.

Tekið er fram í svarinu að vegna þess mikla álags sem hefur fylgt fjármálakreppunni og nýjum verkefnum, hafi fundatíðni margfaldast, sem m.a. hefur leitt til þess að stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur þurft að funda um helgar, á kvöldin og nóttunni. Ráðherra hafi þess vegna ákveðið að tvöfalda þóknun stjórnarmanna fyrir tímabilið 1. október til ársloka. Í ljósi aukins álags á formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins sem hófst þegar í sumar hafi ráðherra ákveðið að tvöfalda þóknun hans frá 1. júlí sl. Engin ákvörðun hafi verið tekin um frekari álagsgreiðslur.

Þá er þess getið í svarinu, að viðskiptaráðherra hafi farið þess á leit við stjórnir Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins að þær endurskoði starfskjör forstjóra eftirlitanna, í ljósi fram komins frumvarps um breytingu á lögum um kjararáð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert