Gjöf forseta til Hillary Clinton á Ebay
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is
Gjöf forseta Íslands til Hillary Clinton árið 1999 er komin á uppboð á Ebay.com.
Gripurinn er gjöf sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gaf Hillary Clinton, þá forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún kom til Íslands árið 1999 á alþjóðlega ráðstefnu um konur og lýðræði. Gripurinn, egg á glerfæti, er nú kominn á uppboð á uppboðsvefnum Ebay.
Myndir af skúlptúrnum fylgja með uppboðslýsingunni, og á glerfætinum stendur: Forseti Íslands undir fána og skjaldarmerki. Á myndunum sést einnig að gripurinn hefur á sínum tíma verið skráður í alríkisskrá yfir gjafir til forsetahjónanna fyrrverandi.
Nafns þess er hannaði skúlptúrinn og smíðaði er hvergi getið.
Seljandi skúlptúrsins kallar sig Gateway Antiques, og kveðst hafa keypt hann á uppboði í New York.
Samkvæmt upplýsingum á Ebay er skúlptúrinn metinn á andvirði rúmlega 35 þúsund króna, eða á 300 bandaríkjadali. Uppboðið hófst á mánudag og rennur út í dag. Seljandinn segir öruggt að verð gripsins muni hækka og að í honum felist mikil saga. Hann setur upp 299 dali en enn hefur ekki verið boðið í gripinn.
Heimsókn Hillary Clinton á ráðstefnuna um konur og lýðræði vakti heimsathygli. Clinton hélt lokaræðu þingsins, ræðu sem enn er í minnum höfð, þar sem hún talaði um konur, jafnrétti og þær umbætur sem nauðsynlegar væru til að rétta þeirra hlut.
Bloggað um fréttina
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson Egglos Hillary Clinton -
Stefán Friðrik Stefánsson Hillary Clinton selur gjöfina frá Ólafi Ragnari -
Jenný Anna Baldursdóttir Aumingja Óli og við öll -
Ívar Andersen Dýr kosningabarátta Clintons. -
Bergur Thorberg Kópía eða aukapeningur?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. febrúar 2008, Innlent Íslendingar áhugasamir
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Íslendingasögurnar 1 ár og 7 mánuði á leiðinni til Clintons
- Föstudagur, 29. febrúar 2008, Innlent Íslendingar kjósa demókrata
- Föstudagur, 4. janúar 2008, Innlent „Ákveðin vonbrigði“
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Afhending bóka dróst af gildri ástæðu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































