Dregur úr fólksfjölgum

Íslendingar verða komnir yfir 400 þúsund árið 2050 gangi spá …
Íslendingar verða komnir yfir 400 þúsund árið 2050 gangi spá Hagstofunnar eftir. mbl.is/Kristinn

Samkvæmt spá um mannfjölda, sem Hagstofan hefur birt, verða landsmenn 408.835 árið 2050 en íbúafjöldi var 313.376 í byrjun þessa árs. Hagstofan segir, að árleg fólksfjölgun verði að meðaltali 0,6% sem sé minni fjölgun en var á síðari hluta 20. aldar. Landsmönnum muni þó fyrirsjáanlega fækka fyrstu tvö ár spátímabilsins.

Hagstofan segir, að vegna lengri meðalævi og lækkaðrar fæðingartíðni verði talsverðar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Öldruðum muni fjölga verulega á spátímabilinu, einkum undir lok þess. Nú tilheyra elstu þjóðfélagsþegnarnir óvenjufámennum fæðingarárgöngum sem fæddust á kreppuárunum. Eftir 2020 þegar fjölmennir árgangar eftirstríðsáranna komast á eftirlaunaaldur muni hlutfall aldraðra hækka verulega. Árið 2050 verða 8,3% íbúa áttræðir eða eldri samanborið við 3,2% við upphaf spátímabils.

Þótt gert sé ráð fyrir því að barnsfæðingum fækki nokkuð á spátímabilinu verður fæðingartíðni áfram há í evrópsku samhengi. Hagstofan segir að fæðingartíðni hafi hækkað nokkuð undanfarin ár og íslenskar konur geti nú vænst þess að eiga 2,1 börn um ævina.

Gert er ráð fyrir að fyrstu tvö ár spátímabilsins verði frjósemishlutfall tæplega 2,1 en lækkar nokkuð í kjölfarið og mun standa í 2 fram til 2015. Eftir það mun frjósemishlutfall lækka jafnt og þétt í 1,85 við lok spátímabils. Vegna fremur hárrar fæðingartíðni verði börn og ungmenni hlutfallslega fjölmenn hér á landi. Árið 2050 muni 22,9% íbúa tilheyra aldurshópnum 0–19 ára en í dag er þetta hlutfall 28,5%.

Hagstofan segir, að fólki af erlendum uppruna muni væntanlega fjölga í framtíðinni.  Þó er gert ráð fyrir að fleiri flytjist frá landinu en til þess árin 2009, 2010 og 2011. Flutningsjöfnuður mun hækka eftir það og verða 2 af hverjum 1.000 íbúum árið 2030 og 2,1 við lok spátímabilsins. Þetta er heldur lægri flutningsjöfnuður en í Noregi og Svíþjóð en álíka hár og í Danmörku og Finnlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert