12 mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglumann
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tæplega fimmtugan karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglukonu. Maðurinn var í febrúar í fyrra dæmdur fyrir árás á lögreglumann. Sá dómur var skilorðsbundinn og með broti sínu nú rauf maðurinn því skilorðið.
Maðurinn réðist í ágúst síðastliðnum að lögreglukonu í Hafnarfirði þar sem hún var við skyldustörf. Maðurinn reif í hár konunnar, stakk fingrum sínum upp í munn hennar, klóraði hana í tannholdið og sló hana með krepptum hnefa í vinstri kjálka, allt með þeim afleiðingum að konan hlaut opið sár á vör og í munnhol, sem sauma þurfti með nokkrum sporum, og eymsli hægra megin í kjálka og kjálkalið.
Maðurinn játaði skýlaust brot sitt. Hann er fæddur í júlí 1961. Með dómi Hæstaréttar 22. febrúar 2007, var staðfest sakfelling yfir honum vegna brots gegn valdstjórninni. Maðurinn réðist þá harkalega á lögreglumenn í lögreglubifreið, en verið var að flytja manninn á slysadeild. Honum var gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði og voru þrír mánuðir refsingarinnar skilorðsbundnir í tvö ár. Með árásinni á lögreglukonuna nú rauf hann skilorðsdóminn.
Í dómsorði héraðsdóms Reykjaness segir að við ákvörðun refsingar sé til þess að líta að brot gegn lögreglumanni að störfum eru litin alvarlegum augum. Þá verði að líta til þess að í örorkumati sérfræðings í bæklunarskurðlækningum, komi fram að afleiðingar árásarinnar eru þær að lögreglukonan er með lýtandi sár á vör, eymsli hægra megin í kjálka og kjálkalið og árásin hefur valdið henni andlegri vanlíðan. Varanleg læknisfræðileg örorka er metin 5%.
Þá segir að þar sem maðurinn hefur áður sætt refsingu fyrir að ráðast að lögreglumanni verði enn fremur við ákvörðun refsingar að líta til ítrekunarheimildar almennra hegningarlaga. Einu málsbætur ákærða séu þær að hann hefur skýlaust játað brotið. Að öllu þessu virtu þyki refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Sakfelldur fyrir árás á lögreglumann
- Þriðjudagur, 23. september 2008, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumenn
- Mánudagur, 21. desember 2009, Innlent Refsing þyngd fyrir fjárdrátt
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Tveggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað
- Mánudagur, 30. júní 2008, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir nokkur brot
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































