5 milljónir til styrktar félaga- og hjálparsamtaka

Hjálpræðisherinn er á meðal þeirra sem ráðuneytið styrkir nú.
Hjálpræðisherinn er á meðal þeirra sem ráðuneytið styrkir nú. mbl.is/Árni Sæberg

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur veitt 5 milljónum króna til styrktar félaga- og hjálparsamtaka sem liðsinna heimilislausum og fjölskyldum í fjárhagsvanda.

Styrki hljóta að þessu sinni Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og á Akureyri, Fjölskylduhjálpin, Hjálparstarf kirkjunnar, Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og Kaffistofa Samhjálpar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert