Fengu lögregluaðstoð vegna ölvunar
Vestmannaeyjar. mbl.is/Brynjar Gauti
Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast um helgina en þó nokkrar tilkynningar bárust um stympingar á og við skemmtistaði bæjarins. Engar kærur liggja þó fyrir vegna þessa. Þá hafði lögreglan, að vanda, í nógu að snúast við að koma fólki til aðstoðar við að komast til síns heima þar sem ganglimir létu ekki að stjórn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í Vestmannaeyjum.
Tvö eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Í öðru tilvikinu hafði verið sparkað í bifreið og liggur fyrir hver það var sem það gerði. Í hinu tilvikinu var rúða brotin í sumarhúsi við Norðurgarð. Ekki er vitað hver þarna var að verki og þá er ekki vitað hvenær spjöllin voru unnin. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um gerenda eða gerendur eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Þann 16. desember sl. var lögreglu tilkynnt um slys á Skansinum en þarna hafði maður á fjórhjóli misst stjórn á hjólinu með þeim afleiðingum að það valt niður hlaðinn vegg sem þarna er og lenti ofan á ökumanninum. Ökumaðurinn slasaðist eitthvað í óhappinu en slapp þó ótrúlega vel.
Þrjár kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum en um er að ræða akstur utan vega í þéttbýli, vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og kæra vegna of margra farþega í bifreið. Þá voru sjö eigendur ökutækja boðaðir með ökutæki sín til skoðunar.
Þann 21. desember sl. var tilkynnt um að ekið hafi verið utan í bifreið á bifreiðaplaninu við Vöruval og sá er tjóninu olli hafi farið í burtu án þess að tilkynna um óhappið. Er talið að atvikið hafi átt sér stað um kl. 15:00 þann sama dag. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um atvikið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu í vikunni og var í öllum tilvikum um minnihátta óhöpp að ræða og lítil sem engin slys á fólki.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Ég var heima þessa helgina -
Pálmi Freyr Óskarsson Fyrir 1 eða 2 helgum.........................
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Minniháttar líkamsárás í heimahúsi
- Þriðjudagur, 4. mars 2008, Innlent Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast
- Miðvikudagur, 26. mars 2008, Innlent Þrjár líkamsárásir kærðar í Vestmannaeyjum
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Tvö fíkniefnamál í Eyjum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































