Hálka á Hellisheiði

Bílar á Hellisheiði.
Bílar á Hellisheiði. Rax / Ragnar Axelsson

Á Suðurlandi eru víða hálkublettir í uppsveitum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka er á Hellisheiði og hálkublettir eru í Þrengslum. Á Vesturlandi eru hálkublettir víða, hálka er á Bröttubrekku og hálkublettir á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir. Ófært er yfir Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og Eyrarfjall. Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Á Norðausturlandi er víða flughált, á Austurlandi víða hálka eða hálkublettir. Ófært er um Öxi. Á Suðausturlandi er hálka austan við Vík annars eru vegir víðast hvar auðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert