Vilja atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóða

Jakob G. Hjaltalín, formaður sjómannadeildar Framsýnar - stéttarfélags
Jakob G. Hjaltalín, formaður sjómannadeildar Framsýnar - stéttarfélags mbl.is/AÁB

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar- stéttarfélags telur óeðlilegt að atvinnurekendur sitji í stjórnum lífeyrissjóða. Í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi í gær segir að fundurinn telji eðlilegt að lögum og reglum um starfsemi lífeyrissjóða verði breytt þannig að sjóðfélagar sem hafa hagsmuna að gæta, skipi stjórnir lífeyrissjóða en ekki atvinnurekendur sem hafa annarra hagsmuna að gæta en að verja lífeyrissjóðsréttindi launafólks.

Samtals eru 78 sjómenn skráðir í deildina, það eru starfandi sjómenn og þeir sjómenn sem hætt hafa sjómennsku vegna aldurs. Sjómönnum á landsvísu hefur farið fækkandi og á það einnig við um sjómenn innan Framsýnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert