Enn eitt aflametið

Kleifarberg ÓF 2. Skipið var með 900 tonn upp úr …
Kleifarberg ÓF 2. Skipið var með 900 tonn upp úr sjó eftir veiðitúr í Barentshafi. mbl.is / Þorgeir Baldursson

Enn eitt aflametið hefur fallið i desember hjá skipum Brims H/F. Að þessu sinni var það Kleifarberg ÓF 2 sem var með 900 tonn upp úr sjó en skipið var á veiðum í Barentshafi. Hófst veiðiferðin i Tromsö hinn 16. nóvember og var landað i Reykjavik 21. desember síðastliðinn.

Skipið var með um 460 tonn af þorski og afgangurinn af aflanum var blandaður ýsu og ufsa. Veiðitúrinn tók 37 daga og aflaverðmætið er um 240 milljónir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert