Flugeldasýning í Mýrdalnum

Flugeldasýning yfir Vík í Mýrdal í dag.
Flugeldasýning yfir Vík í Mýrdal í dag. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

Flugeldasala björgunarsveitanna er nú farin af stað og er hún ein af mikilvægustu fjáröflunarleiðum þeirra. Í Vík í Mýrdal sáu félagar úr Björgunarsveitinni Víkverja um flugeldasýningu í dag í tengslum við jólaball í Leikskálum.

Ljósadýrðin yfir bænum var eftir því. Víkverjamenn hafa um árabil útbúið sýningar og séð um að kveikja á þeim. Ekki skemmdi að veðrið var einstaklega gott, 10 stiga hiti og logn, að sögn Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert