Íslendingar aldrei verið svartsýnni
Um 67% Íslendinga töldu að persónulegir hagir þeirra yrðu verri á árinu 2009 en þeir voru í fyrra. Tæplega 30% töldu að persónulegir hagir þeirra yrðu svipaðir og á nýliðnu ári en aðeins 4% væntu batnandi hags fyrir sig.
Viðhorf til efnahagsástands á komandi ári hefur aldrei mælst jafn neikvætt og það mældist í lok síðasta árs. Rúmlega 90% Íslendinga töldu að efnahagsástandið yrði verra á árinu 2009 en það var á árinu 2008, 6% töldu að það yrði svipað bæði árin og aðeins 3% áttu von á að það myndi batna. Þá töldu 93% að atvinnuleysi ætti eftir að aukast á árinu 2009. Hlutfall þeirra sem voru þessarar skoðunar hefur hækkað um 46 prósentustig frá síðustu mælingu. Hins vegar töldu 4% að atvinnuleysi yrði svipað á þessu ári og það var í fyrra en 2% minna.
31% óttast atvinnumissi
Þegar spurt var um atvinnuhorfur launþega, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi, töldu tæplega 69% Íslendinga sig vera í öruggri vinnu en 31% taldi líkur á atvinnumissi. Á síðasta ári voru 12% á því að þau gætu orðið atvinnulaus. Um 47% Íslendinga töldu að það myndu taka stuttan tíma að finna nýja vinnu en jafn stór hópur taldi að það gæti tekið langan tíma.
Þegar á heildina er litið má segja að almennt ríki svartsýni gagnvart árinu 2009. Íslendingar skipa sér á bekk með íbúum Vestur-Evrópu sem eru líkt og áður þeir svartsýnustu í heimi hér.
Niðurstöður þessar fengust með netkönnun sem gerð var 25. nóvember til 1. desember í fyrra. Úrtaksstærð var 1.874 manns á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu úr viðhorfahópi Capacent Gallup. Svarhlutfall var 65%.
Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir Svartsýni - bjart mál -
Haraldur Hansson Er "þjóðin" svartsýn eða bara borgararnir? -
Júlíus Björnsson Nú er það svart -
Sigurbjörg Er einhver hissa? -
Anna Guðný En við bjartsýnu? -
Hjörtur J. Guðmundsson Finnar aldrei svartsýnni -
Vilhjálmur Árnason Ekki er ég hissa. -
Vésteinn Valgarðsson Sér er nú hver svartsýnin
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Íslendingar svartsýnir um eigin fjármál
- Föstudagur, 28. desember 2007, Innlent Landsmenn almennt svartsýnni en í fyrra
- Föstudagur, 28. desember 2007, Innlent Um helmingur landsmanna telur að atvinnuleysi muni aukast
- Miðvikudagur, 12. ágúst 2009, Innlent Íslendingar svartsýnni en aðrar þjóðir
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Innlent Afar fáir ætla að kaupa íbúð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































