Tvö flugeldaslys í gær

Tvö flugeldaslys voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í báðum tilvikum var fólk flutt á slysadeild. Í Grafarvogi voru tveir unglingar að taka í sundur skotelda þegar sprenging varð og meiddist annar pilturinn.

Kópavogi var þriðji unglingurinn við samskonar iðju og þar fór allt á sama veg. Sá brenndist á höndum og í andliti.

Mikið ónæði var af flugeldum í gær og bárust lögreglunni margar kvartanir vegna þessa. Nokkuð var líka um skemmdarverk en púðurkerlingum og öðru slíku var ýmist troðið inn um bréfalúgur eða settar í póstkassa og ruslatunnur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert