Ingibjörg í Jerusalem Post

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mbl.is/Árni Sæberg

Á vefsíðu ísraelska dagblaðsins Jerusalem Post í dag er fjallað um fordæmingu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra Íslands, á árásum Ísraela á Gaza-svæðið.  Ingibjörg hafi lagt áherslu á að slík innrás kæmi óhjákvæmilega niður á almennum borgurum.

Vitnað er til yfirlýsingar Ingibjargar um að „beiting slíks ægivalds leiði til þess að alþjóðasamfélagið sýni ábyrgð og grípi inn í og þess að sent verði friðargæslulið á svæðið.“ Hún hafi svo bætt við að henni þætti miður um óeiningu Öryggisráðs SÞ í málinu.

„Öryggisráðið ber ábyrgð á friði og öryggi í heiminum og ástandið á Gaza-svæðinu krefst þess að alþjóðasamfélagið, með Öryggisráðið í forystu, uppfylli skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum,“ var haft eftir Ingibjörgu.

Hér má sjá grein Jerusalem Post.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert