Öll fiskiskipin hafa fundið loðnu
Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri Hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar, segir að fiskiskipin Faxi RE, Lundey NS og Börkur NK hafi öll fundið loðnu við landið norðaustanvert.
Hann segir í samtali við mbl.is að Lundey og Börkur hafi fundið loðnu á svæði sem hafi verið „í beinu framhaldi af því sem Faxi hafði fundið
suðaustast á sínu leitarsvæði. Þannig að þetta er samfellt þarna á
þessu leitarsvæði og vestur um. Sennilega allavega að
Kolbeinseyjarhrygg, eða þar um bil.“
Sveinn segir að loðnugangan sé á sömu slóðum og hafi verið í fyrra á sama árstíma. „Nú er bara að vona að það hafi bæst eitthvað við þá mælingu [sem var gerð á síðasta ári]. Við þurfum meira heldur en við mældum þá til að starta vertíðinni,“ segir Sveinn.
Árni Friðriksson, sem hefur leitað við suðurströnd landsins, siglir nú í áttina að loðnuskipinu Faxa RE 9 sem fann í gær fyrstu torfuna norðaustur af Langanesi. Engin loðna hefur fundist við suðurströnd landsins líkt og búist var við.
Skipin fjögur hófu loðnuleit við landið 4. janúar sl. Börkur NK, sem leitaði við landið austanvert, fann loðnu nyrst á sínu leitarsvæði. Það hefur nú lokið leit og hefur snúið til hafnar.
Sveinn segir að Lundey NS, sem hefur verið við leit um landið norðanvert, sé komin austast á sitt leitarsvæði. „Hún hefur komist í loðnu líka,“ segir hann.
Hann segir að verið sé að skoða það að breyta leitarlínum Lundeyjar og Faxa, og þétta þannig leitina. Skipin ættu að öllum líkindum að ljúka sinni leit á morgun.
Unnið er að mælingum á svæðinu en ekki hafa fengist neinar niðurstöður. Talsverð vinna fari í að túlka gögnin sía út truflanir sem verða á tækjabúnaðinum.
Þetta er í fyrsta sinn sem búnaður er um borð í öllum skipunum sem hefur verið kvarðaður í samræmi við búnað rannsóknaskipsins þannig að samvörun sé á milli mælinga. Því nýtast skipin sem væru þau rannsóknaskip og niðurstöður athugana frá þeim geta nýst beint í mat á stærð loðnustofnsins. Gögnunum sem safnað er frá leitarskipunum eru flutt um gervitungl og unnið úr þeim á Hafrannsóknastofnuninni.
Bloggað um fréttina
-
Jóhann H. Fyrir Deutsche Bank... -
Þórarinn M Friðgeirsson Og veiða nú sem aldrei fyrr - vonandi ekki sýking ...
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. mars 2009, Innlent Leita loðnu við Snæfellsnes
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Loðnufrysting á Vopnafirði
- Sunnudagur, 4. janúar 2009, Innlent Halda til loðnuleitar
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Lundey NS farin til loðnuleitar
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent 1.400 tonnum af síld landað úr Lundey
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































