Kannabisræktun í Grafarholti

Kannabisplönturnar sem handlagðar voru í Grafarholti
Kannabisplönturnar sem handlagðar voru í Grafarholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að við húsleit á hafi fundist um 70 kannabisplöntur, þar af margar á lokastigi ræktunar. Jafnframt var lagt hald á ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Kona á fertugsaldri var handtekin í þágu rannsóknar málsins og hefur hún áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.

Að sögn lögreglu er aðgerðin liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert