Sér ekki sparnaðinn við lokun St. Jósefsspítala

Sankti Jósefsspítali í Hafnarfirði.
Sankti Jósefsspítali í Hafnarfirði. Árni Sæberg

Landlæknisembættið var ekki með í ráðum um þá ákvörðun að leggja niður St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og segist Matthías Halldórsson eiga erfitt með að sjá hvaða sparnaður felist í þeirri ákvörðun. Landlæknisembættinu hefur borist talsvert af kvörtunum frá heilbrigðisstarfsfólki vegna hins mikla hraða og litla samráðs sem haft er í breytingum sem boðaðar eru í heilbrigðiskerfinu.

Matthías segir þó að margar þessar breytinga séu til góðs, þ. á m. stækkun heilbrigðisumdæma með sameiningu heilbrigðisstofnana, sem gefi stofnunum meira sjálfræði yfir sínu svæði. Breytingum sem gerðar hafa verið í sparnaðarskyni í heilbrigðiskerfinu hefur þó verið mótmælt um allt land í þessari viku og gætir víða mikillar óánægju, þótt sumstaðar sé breytingunum fagnað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert