SUS styður heilbrigðisráðherra

Samband ungra sjálfstæðismanna hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeim breytingum sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hafi lagt til á sviði heilbrigðismála. Það sé tilraun til að ná fram varanlegum umbótum á rekstri heilbrigðisstofnana á Íslandi í því skyni að auka skilvirkni og hagræði.

Í ályktuninni segir, að mikilvægt sé, einkum um þessar mundir, að stjórnvöld leiti leiða til þess að draga úr kostnaði. Heppilegast sé ef slíkur sparnaður náist fram með því að gera breytingar sem fela í sér varanlega hagræðingu í stað þess að fresta framkvæmdum eða að flatur niðurskurður sé komi í stað raunverulegrar forgangsröðunar. Þannig séu hagsmunir sjúklinga og skattgreiðenda  settir ofar hagsmunum stofnana.

„Hlutverk stjórnmálamanna er að forgangsraða. Þær ákvarðanir sem heilbrigðisráðherra hefur tekið um hagræðingu heilbrigðiskerfisins eru ekki óumdeildar eða óumdeilanlegar. Ungir sjálfstæðismenn fagna því að ráðamenn þjóðarinnar hafi þor til að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir. Ennfremur skorar stjórn SUS á þingmenn og ráðherra að skjóta sér ekki undan þeirri ábyrgð að taka erfiðar ákvarðanir í því árferði sem nú ríkir," segir m.a. í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert