Olíuleit á Drekasvæðinu boðin út

Fýsilegt er að byggja upp þjónustu í Gunnólfsvík í Finnafirði á olíuleitarstiginu sem áætlað er að geti staðið í 8 til 10 ár. Í upphafi verði að mestu nýtt mannvirki sem til staðar eru í sveitarfélögunum Vopnafjarðarhrepp og Langanesbyggð. Jafnframt eru aðstæður í Gunnólfsvík til frekari uppbyggingar taldar mjög fýsilegar þegar og ef olía og gas finnst á svæðinu. Þetta er meðal helstu niðurstaðna staðarvalsskýrslu vegna þjónustumiðstöðvar fyrir olíuleit á Drekasvæðinu. Útboð vegna olíuleitarinnar verða auglýst á morgun. Úthluta á fimm leyfum síðari hluta ársins.

Á 135. löggjafarþingi Íslendinga 2007-2008 var lögð fram og samþykkt þingsályktunartillaga um að fela ríkisstjórninni að aðstoða sveitarfélögin Vopnafjarðarhrepp og Langanesbyggð við að undirbúa og kanna þörf á starfrækslu  þjónustumiðstöðvar sem gæti annast alla helstu þjónustu hérlendis við skip sem leita olíu á Drekasvæðinu.

Í kjölfar þessarar samþykktar stofnuðu sveitarfélögin  félagið, Drekasvæðið ehf., til þess að vinna að undirbúningi málsins. Í febrúar 2008 ákvað Iðnaðarráðherra að aðstoða sveitarfélögin með fjár- og vinnuframlagi til þess að standa straum að sérfræðiaðstoð við þarfagreiningu og staðarvalsathugunum fyrir þjónustumiðstöð á svæðinu. Verkefnið var boðið út í mars meðal nokkurra verkfræðistofa með reynslu í sambærilegum verkefnum og var samið við Línuhönnun og Almennu verkfræðistofuna í apríl 2008.

Markmið verkefnisins var að kanna möguleika og hagkvæmni þess að á svæði þessara sveitarfélaga verði reist þjónustumiðstöð fyrir olíuleit, tengdar rannsóknir og síðar mögulega olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Verkefnið fólst í þarfagreiningu fyrir starfsemi olíuleitarfyrirtækja á fyrstu tveimur stigum olíuleitar, þ.e.a.s. mælingum og tilraunaborunum og síðar borun dýpri borhola ef í ljós kemur að slíkt sé fýsilegt.   Þessi fyrstu ferli geta tekið allt að 8-10 ár. Að þeim tíma liðnum gætu vinnsluboranir hafist.

Í skýrslunni skyldi og meta möguleika til uppbyggingar þjónustusvæðis á landi á vinnslustigi olíu og gass í Gunnólfsvík í Finnafirði.  Í þessu sambandi átti að greina þá aðstöðu sem fyrir er á svæðinu og möguleikum á frekari uppbyggingu hennar þ.a. notkunar-, umhverfis- og öryggiskröfum sé framfylgt.

Staðarvalsskýrslan liggur nú fyrir og verður kynnt á íbúafundum  í sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi og Langanesbyggð í dag.

Niðurstöður skýrslunnar bera það með sér að fýsilegt er að byggja upp þjónustu á svæðinu á olíuleitarstiginu sem áætlað er að geti staðið í 8-10 ár. Í upphafi verði að mestu nýtt mannvirki sem til staðar eru í sveitarfélögunum þ.e. hafnarsvæði, flugvellir og önnur aðstaða.  Jafnframt eru aðstæður í Gunnólfsvík til frekari uppbyggingar taldar mjög fýsilegar þegar og ef olía og gas finnst á svæðinu.

Á svæðinu eru bundnar miklar vonir við það að vel takist til í þessum málum og að mögulegt verði að byggja upp veruleg atvinnutækifæri á grundvelli þessa verkefnis til framtíðar.

Útboð vegna olíuleitarinnar verða auglýst 22. janúar. Við það er miðað að úthlutað verði fimm leyfum til sérhæfðra olíuleitarfyrirtækja til þess að ráðast í umfangsmiklar og dýrar rannsóknir og boranir á Drekasvæðinu. Gert er ráð fyrir því að unnt verði að veita leyfin síðari hluta ársins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert