Mun fleiri karlar en konur í áhrifastöðum

Konur eru um þriðjungur þingmanna, ráðherra, sveitarstjórnarmanna, ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra ráðuneyta, héraðsdómara og nefndarmanna í opinberum nefndum. Þær eru um fjórðungur forstöðumanna ríkisstofnana, framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnarmanna stærstu lífeyrissjóðanna.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum, sem Hagstofan hefur gefið út um konur og karla í áhrifastöðum árið 2008. Þar kemur fram, að hlutur kvenna fari þó vaxandi í ýmsum áhrifastöðum en standi í stað eða minnki í öðrum.

Konur eru meirihluti stjórnenda á leikskóla- og grunnskólastigi en karlar meirihluti stjórnenda á framhaldsskóla- og háskólastigi. Kynjaskipting meðal stjórnarformanna og stjórnarmanna fyrirtækja var óbreytt árin 1999–2007, en konur voru þar rúmur fimmtungur. Hlutfall kvenna af framkvæmdastjórum hækkaði úr 15% í 19% á sama tíma.

Dagblöðum er nú sem fyrr ritstýrt af körlum en konur hafa komið að ritstjórn og fréttastjórn dagblaða síðustu árin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert