Allt með kyrrum kjörum á Austurvelli

Hörður Torfason stýrir enn einum mótmælafundi á Austurvelli á morgun.
Hörður Torfason stýrir enn einum mótmælafundi á Austurvelli á morgun. Ómar Óskarsson

Engir mótmælendur eru nú á Austurvelli og hafa ekki verið frá því kl. 20 í kvöld. Það virðist því ætla að ganga eftir, sem rætt hafði verið um, að þar verði ekki nein mótmæli í kvöld.

Forráðamenn Radda fólksins hvöttu til þess að mótmælendur legðu hvorki leið sína á Austurvöll í kvöld né annað kvöld. Með því vilja þeir koma í veg fyrir ólæti sem gætu skapast, ef drukkið fólk í miðbænum blandaðist í hópinn.

Raddir fólkisins standa að vanda fyrir mótmælafundi á Austurvelli kl. 15.00 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert