Gagnrýnir dóm um flengingar
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, hefur ritað dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu, bréf þar sem gagnrýndur er dómur Hæstaréttar um flengingar og farið fram á að lögum verði breytt.
Í málinu var karlmaður m.a. ákærður fyrir brot gegn hegningarlögum fyrir að hafa m.a. rassskellt tvö börn sambýliskonu sinnar, þegar börnin voru 6 ára og 4 ára.
Í dómi Hæstiréttar er m.a. vísað til þess að barnaverndarlög leggi ekki fortakslaust bann við því að foreldri eða annar maður með samþykki þess beiti barn líkamlegum aðgerðum til að bregðast við óþægð, heldur sé refsinæmi slíkrar háttsemi háð því að gerðir hans séu til þess fallnar að skaða barnið andlega eða líkamlega. Þá kemur fram í dómnum, að 217. grein almennra hegningarlaga eigi ekki við þegar foreldrar samþykkja ofbeldi gegn börnum sínum.
Umboðsmaður barna segir, að þótt barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna hafi ekki verið lögfestur hér á landi sé Ísland skuldbundið að þjóðarétti að virða ákvæði hans. Í 19. gr. sáttmálans sé börnum tryggð vernd gegn hvers konar ofbeldi, hvort sem það er í umsjá foreldra eða annarra.
Segist umboðsmaður barna telja nauðsynlegt að breyta ákvæði barnaverndarlaga og ákvæðum barnalaga þannig að það komi berum orðum fram í lögum að barn eigi rétt á vernd gegn hvers konar ofbeldi frá foreldrum sínum.
Þá gagnrýnir umboðsmaður barna þá lagatúlkun, sem komi fram í dóminum, að 217. grein hegningarlaga eigi ekki við um flengingar barna, ef foreldrar samþykkja þær.
„Hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum er ólíðandi, hvort sem ofbeldið er andlegt eða líkamlegt. Það getur að mati umboðsmanns barna ekki staðist að börnum sé veitt minni vernd gegn ofbeldi en fullorðnum. Umboðsmaður barna hefur því farið fram á að lögum verði breytt og börnum tryggð sú vernd sem þau eiga rétt á samkvæmt lögum og alþjóðlegum mannréttindasamningum," segir í bréfinu.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Þórðarson Leyfir Hæstiréttur flengingar einungis á börnum? -
Alma Jenny Guðmundsdóttir Mótmælafundur um ofbeldi, hefði betur mótmælt þessu ofbeldi! -
Margrét St Hafsteinsdóttir Gagnrýnir sýknudóm hæstaréttar -
Jenný Anna Baldursdóttir Takk Margrét María -
Jón Ármann Steinsson Hlutverk dómsmálaráðherra
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent Unnið að gerð reglna fyrir ættleiðingarfélög
- Þriðjudagur, 27. janúar 2009, Innlent Barnaheill harma sýknudóminn
- Þriðjudagur, 19. ágúst 2008, Innlent Barnaheill harma dómsniðurstöðu
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Endurskoða þarf reglur um kynskipti
- Mánudagur, 22. september 2008, Innlent Ræða þarf starfstíma barna
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































