Fremur rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Aðeins ein minniháttar líkamsárás var kærð, samanborið við sex nóttina áður. Alls voru sjö menn teknir vegna gruns um ölvun við akstur í nótt sem leið, en nóttina áður voru tíu teknir. Hjá lögreglunni á Egilsstöðum fengust þær upplýsingar að tilkynnt hefði verið um eina minniháttar líkamsárás.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert