Réttindi óbreytt hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.i
Lífeyrissjóður verslunarmanna birtir í auglýsingu í Morgunblaðinu í dag upplýsingar um starfsemi sjóðsins á síðasta ári. Lífeyrissjóðirnir töpuðu miklum fjármunum við fall viðskiptabankanna og verðfall á öðrum eignum. Fram kemur að þrátt fyrir það hafi sjóðurinn náð að verja meginhluta af eignasafni sínu. Þannig námu eignir 249 milljörðum í lok árs 2008 í stað 269 milljarða ári fyrr. Lífeyrissjóður verslunarmanna stóð vel fyrir kreppuna og hefur hækkað lífeyrisréttindi sjóðfélaga um rúm 21% umfram verðlagsbreytingar frá 1997. Fram kemur í upplýsingum frá sjóðnum að þróun lífeyrisgreiðslna muni ráðast af ástandinu á fjármálamörkuðum og áhrifum þess á eignir.
„Afkoma ársins veldur mér að sjálfsögðu vonbrigðum. Miðað við allar aðstæður má þó ef til vill segja að það hafi unnist ákveðinn varnarsigur,“ segir Þorgeir Eyjólfsson, framkvæmdastjóri. Bendir hann í því sambandi á að nafnávöxtun hafi lækkað hjá erlendum sjóðum, þar á meðal lífeyrissjóðum, jafnvel um 20-30%.
Ákveðin óvissa er um horfur á þessu ári. Þorgeir bendir á að verð hlutabréfa hafi haldið áfram að lækka á erlendum mörkuðum auk þess sem styrking íslensku krónunnar hafi neikvæð áhrif á stöðu sjóðsins. Þá sé réttarleg óvissa um uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninga. „Staðan býður jafnframt upp á tækifæri þar sem verðbréf eru í lágu verði. Það gefur okkur tækifæri til að fjárfesta í verðbréfum á hagstæðu verði til lengri tíma.“
Í hnotskurn
» Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði 32 milljörðum á fjárfestingum sínum á síðasta ári.» Ávöxtun eigna sjóðsins var neikvæð um 11,8% á árinu og raunávöxtun neikvæð um 24,1%. Þegar litið er til síðustu fimm eða tíu ára sést að hrein raunávöxtun hefur verið jákvæð.
» Á síðasta ári fengu 8.662 greiddan lífeyri, alls að fjárhæð 5 milljarða kr.
Bloggað um fréttina
-
Ægir Óskar Hallgrímsson Það er hægt að gera mun betur. -
Jakob Falur Kristinsson Óbreyttur lífeyrir
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 21. febrúar 2009, Innlent Lífeyrisréttindi óbreytt
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Laun stjórnenda helstu lífeyrissjóða munu lækka
- Þriðjudagur, 1. apríl 2008, Innlent Raunávöxtun Festu lífeyrissjóðs 2,8% í fyrra
- Mánudagur, 21. apríl 2008, Innlent Raunávöxtun LSR og LH neikvæð á síðasta ári
- Föstudagur, 22. maí 2009, Innlent Réttindi lækka um 6% út árið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































