Engin stefnubreyting varðandi aðra möguleika málshöfðunar
Gylfi Magnússon.
Viðskiptaráðuneytið segir í yfirlýsingu, að engin breyting hafi orðið á fyrirhuguðum stuðningi ríkisstjórnarinnar við hugsanlega málshöfðun skilanefnda Landsbankans og Kaupþings á hendur breska ríkinu. Þá hafi núverandi ríkisstjórn ekki breytt þeirri ákvörðun fyrri stjórnar að kanna möguleika á málshöfðun fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Breska blaðið Financial Times sagði í dag, að íslensk stjórnvöld hefðu lagt á hilluna áform um að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum vegna hryðjuverkalaganna. Haft var eftir Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, að að engin áform séu af hálfu Íslands að leita til dómstóla vegna hryðjuverkalaga.
Yfirlýsing ráðuneytisins er eftirfarandi:
„Vegna umræðu um hugsanleg málaferli á hendur Bretum vegna aðgerða þeirra gegn íslenskum bönkum s.l. haust þá skal áréttað að engin breyting hefur orðið á fyrirhuguðum stuðningi ríkisstjórnarinnar við hugsanlega málshöfðun skilanefnda Landsbankans og Kaupþings á hendur breska ríkinu. Íslenska ríkið yrði hins vegar ekki beinn aðili að slíkum málum.
Fyrri ríkisstjórn fékk bresku lögmannsstofuna Lovells til að gefa álit á hugsanlegri málshöfðun íslenska ríkisins gegn breskum stjórnvöldum vegna aðgerða Breta. Að mati Lovells voru engar líkur á að slík málshöfðun myndi verða til þess að íslenska ríkinu yrðu dæmdar skaðabætur. Að fenginni þeirri niðurstöðu ákvað fyrri ríkisstjórn að höfða ekki mál gegn Bretum fyrir breskum dómstólum vegna þessa. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki breytt þessari ákvörðun.
Fyrri ríkisstjórn ákvað jafnframt að kanna aðra möguleika til málshöfðunar, m.a. fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki breytt þeirri ákvörðun og enga ákvörðun tekið um að höfða slíkt mál fyrir þeim dómstóli eða öðrum.“
Bloggað um fréttina
-
Tómas Ibsen Halldórsson Hvað sagði Gylfi Magnússon við Financial Times? -
Axel Jóhann Axelsson Umboðslaus Gylfi
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Leita til mannréttindadómstóls
- Mánudagur, 5. janúar 2009, Innlent Ríkið styður málshöfðun
- Miðvikudagur, 7. janúar 2009, Innlent Segja stjórnvöld hafa brugðist í Icesave-máli
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Miklir annmarkar á ákvörðun Breta
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Uppnám á þingi vegna skjala
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































