Eignir „útrásarvíkinganna“ verði frystar

Mótmælafundir Radda fólksins hófust á liðnu hausti. Myndin er frá …
Mótmælafundir Radda fólksins hófust á liðnu hausti. Myndin er frá mótmælafundi 22. nóvember 2009.

Mótmælafundur samtakanna Radda fólksins, sá 27. í röðinni, hófst á Austurvelli nú klukkan 15.00. Yfirskrift fundarins er Breiðfylking gegn ástandinu. Ræður flytja Valgeir Skagfjörð, leikari og leikstjóri, og Heiða Björk Heiðarsdóttir. Fundarstjóri er Hörður Torfason.

Í fréttatilkynningu segir að kröfur fundarins séu skýrar:

1. Frystum eignir „útrásarvíkinganna“
2. Afnemum verðtrygginguna
3. Færum kvótann aftur til þjóðarinnar

Í tilkynningunni segir að talsmenn Radda fólksins hafi átt fund með dóms- og kirkjumálaráðherra, Rögnu Árnadóttur, miðvikudaginn 25. febrúar sl. „Tilefni fundarins var að kynna
kröfu hreyfingarinnar, um frystingu eigna „útrásarvíkinganna“, fyrir
ráðherra.

Á fundinum fóru fram ítarleg og hreinskiptin skoðanaskipti um málið.
Ráðherra tók fram að sérstakur saksóknari hefði lagaúrræði til að frysta eignir „útrásarvíkinganna“ og vilji væri fyrir hendi hjá ráðuneytinu að afgreiða tilskylda rannsóknarvinnu fljótt og vel.“


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert