Kolbrún leiðir Frjálslynda í kraganum

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir

Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar og ritari Frjálslynda flokksins, mun leiða framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Það gerði hún einnig fyrir síðustu Alþingiskosningar, en hafði ekki erindi sem erfiði. Þá munaði aðeins 200 atkvæðum að hún næði þingsæti. Kolbrún mun því aftur gera hríð að því takmarki nú.

Næstu sæti á listanum eru skipuð á eftirfarandi hátt. 2. sætið skipar Helgi Helgason stjórnmálafræðingur, 3. sæti Valdís Steinarsdóttir bókhalds og skrifstofutæknir. 4. sæti Björn Birgisson vélsmiður og 5. sæti Haraldur Bogi Sigsteinsson verkamaður.

Þetta var ákveðið á félagsfundi í kjördæmaráði Suðvesturkjördæmis í gærkvöldi. Á fundinum var borin upp tillaga að skipun fimm efstu sæta listans, sem var samþykkt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert