Fjölmennt Guðlaugssund í Eyjum

Guðlaugur Friðþórsson og Friðrik Ásmundsson, fyrrv. skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestm.eyjum., …
Guðlaugur Friðþórsson og Friðrik Ásmundsson, fyrrv. skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestm.eyjum., en hann hefur haft veg og vanda að  Guðlaugssundinu mbl.is/Sigurgeir

Klukkan fjögur í nótt hófst Guðlaugssundið í Sundhöll Vestmannaeyja en aldrei áður hafa jafn margir verið skráðir í sundið en í ár.  Sundið hefur verið haldið árlega frá 1985 en þá höfðu nemendur Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum frumkvæði að því að synda þá vegalengd sem Guðlaugur Friðþórsson hafði synt í ísköldum og úfnum sjónum árið áður, að því er fram kemur á fréttavefnum Suðurlandið. 

Síðan þá hefur sundið verið haldið árlega en Friðrik Ásmundsson, fyrrum skólastjóri Stýrimannaskólans hefur haldið utan um það.

Eins og áður sagði hafa aldrei fleiri þreytt sundið en í ár en þátttakendur eru í heildina 53 talsins.  Vegna sundsins þurfti að breyta opnunartíma sundlaugarinnar en 12 af hópnum synda allt sundið á meðan hinir synda í hópum og skipta vegalengdinni á milli sín.  Meðal hópa sem taka þátt í sundinu er lið heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum en sex syntu 40 ferðir hvert.

Þá má geta þess að Sóley Haraldsdóttir synti allt sundið í nótt en Sóley verður þrettán ára í næsta mánuði en er að synda Guðlaugssundið í þriðja sinn.  Þá syntu feðgarnir Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og Magnús Berg allt sundið en Magnús eldri er með brjósklos í baki en lét það ekki stoppa sig.

Nánar á fréttavefnum Suðurlandið

Páll Zóphóníasson og Bjarni Jónasson (72 ára).
Páll Zóphóníasson og Bjarni Jónasson (72 ára). mbl.is/Sigurgeir
Slakað á eftir sundið
Slakað á eftir sundið mbl.is/Sigurgeir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert